Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Bergiðjunnar

Bergiðjan tilheyrir endurhæfingarsviði geðdeilda Landspítala Háskúlasjúkrahús og sinnir starfsendurhæfingu.

Framleiðsla

Bergiðjan framleiðir meðal annars garðhúsgögn , blómagrindur , blómaker í garða og fleira. Húsgögnin eru smíðuð úr furu og gerast ekki betri á markaðnum í dag. Hver hlutur , hvort sem hann er úr viði eða járni , er unnin í höndunum og því mjög vandaður. Auk húsgagna eru framleiddar timburtröppur í nokkrum stærðum á smíðaverkstæðinu og hafa verið mjög vinsælar hjá iðnarmönnum vegna þess hve stöðugar þær eru.

Þess er vel gætt að garðhúsgögnin þoli íslenskar aðstæður og því böðuð í fúavörn.

Fyrst eru þau fúavarin með grunn og svo tvisar með lit til að tryggja gæðin.

Á saumastofu eru saumaðar sessur í garðstólana enfremur saumum við líka mikið af rúmfötum fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús.

Sölustaður

Bergiðjan hefur að mestu séð um að selja framleiðsluna sjálf í verslun sem það rekur í Víðihlíð við Vatnagarða, við hliðina á IKEA. Við höfum lítið sem ekkert auglýst vegna þess að í raun eigum við erfitt með að anna eftirspurn.

Forstöðumaður Bergiðjunar er Gunnar Breiðfjörð

Yfiriðjuþjálfi er Fanney B Karlsdóttir.

Vörulisti Bergiðjunnar

Bergiðjan Víðihlíð - Vatnagörðum - 104 Reykjavík - Sími 553 7131